Verkefnið Á allra vörum hófst formlega í gær, 1. september. Að þessu sinni nýtur „Eitt líf“ stuðningsins. Þar hefur verið unnið óhefðbundið forvarnarstarf í grunnskólum landsins, sem vakið hefur mikla athygli. Starfsemin hófst eftir lát ungs drengs, Einars Darra, í maí 2018, og byggist á því að fræða börn og ungmenni, foreldra þeirra og kennara um þá hættu sem fylgir neyslu vímuefna og lyfseðilsskyldra lyfja.
Þjóðkirkjan tók þátt í verkefninu með þeim hætti að kl. 07:15 að morgni mánudagsins 2. september 2019 var kirkjuklukkum landsins hringt til þess að vekja þjóðina með táknrænum hætti.
Langholtskirkja var meðal þeirra kirkna sem tóku þátt í verkefninu og hringdi stundvíslega kl. 07:15.