Í kvöld fór fram Menningarnótt í Reykjavík. Að þessu sinni voru það kirkjuklukkur 23 kirkna um land allt sem hringdu inn flugeldasýninguna. Um var að ræða nýtt dansverk, „Töfra“, eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Kirkjuklukkur, í takt við strengjasveit við Arnarhól, töldu inn í dansverkið og spiluðu undir flugeldasýningunni. Hugmyndin var að sem flestir landsmenn gætu notið flugeldasýningarinnar, sem send var út á RÚV, en um leið heyrt í klukkum sinnar kirkju.
Með því að virkja allar kirkjuklukkur landsins er ætlunin að fanga bæði hátíðleikann sem fylgir hljóðheim klukknanna auk þess að sameina alla landsmenn í listrænni upplifun, nær og fjær.
segir í frétt á vefsíðu Vodafone.
Það verður að viðurkennast að hátíðleikinn var mikill þegar klukkurnar byrjuðu og virkilega gaman að listamenn skuli í auknum mæli farnir að nota þessar gersemar.
Þessar kirkjur tóku þátt á Menningarnótt:
- Hallgrímskirkja
- Fríkirkjan í Reykjavík
- Dómkirkjan
- Langholtskirkja
- Fella- og Hólakirkja
- Laugarneskirkja
- Áskirkja
- Garðakirkja
- Kópavogskirkja
- Víkurkirkja í Mýrdal
- Borg á Mýrum
- Borgarneskirkja
- Akraneskirkja
- Vopnafjarðarkirkja
- Háteigskirkja
- Lágafellskirkja
- Breiðabólstaðarkirkja
- Hlíðarendakirkja
- Krosskirkja
- Akureyjarkirkja
- Vídalínskirkja
- Sauðárkrókskirkja
- Seyðisfjarðarkirkja